,,Ég er svolítið hissa því Manchester United gerir þetta vanalega ekki," sagði Carlo Ancelotti þjálfari Real Madrid á fréttamannafundi í dag aðspurður út í brottrekstur David Moyes.
Ancelotti er einn af þeim sem hefur verið orðaður við stöðuna en hann segist vorkenna Moyes að hafa misst starfið.
,,Ég vorkenni David Moyes en svona er líf fótboltaþjálfarans, stundum gengur ekki vel og þú ert rekinn."

,,Ég er viss um að Moyes mun fá annað lið og annað tækifæri en mér líður alltaf illa þegar þjálfari er rekinn."
Athugasemdir