Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 22. apríl 2014 20:15
Brynjar Ingi Erluson
Frank Lampard í banni í seinni leiknum gegn Atletico
Frank Lampard verður ekki með í seinni leiknum
Frank Lampard verður ekki með í seinni leiknum
Mynd: Getty Images
Frank Lampard, leikmaður Chelsea á Englandi, verður í banni í síðari leik liðsins gegn Atletico Madrid í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Lampard fékk að líta gula spjaldið eftir klukkutíma leik er hann braut á Arda Turan í leiknum en hann mun ekki leika á Stamford Bridge.

Jose Mourinho, stjóri Chelsea, þarf því að fylla hans skarð í síðari leiknum en ljóst er að verður blóðtaka fyrir enska liðið.

Staðan í leiknum er markalaust á VIcente Calderon sem stendur en það stefnir allt í steindautt jafntefli á Spáni.
Athugasemdir
banner
banner