Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 22. apríl 2014 21:47
Brynjar Ingi Erluson
Óvíst hvort Terry verði með gegn Liverpool
John Terry gæti verið frá í einhvern tíma
John Terry gæti verið frá í einhvern tíma
Mynd: Getty Images
John Terry, leikmaður Chelsea á Englandi, meiddist á ökkla gegn Atletico Madrid í kvöld en hann gæti misst af leiknum gegn Liverpool um helgina.

Það leit út fyrir að David Luiz hafi stigið á ökkla Terry þegar um það bil tuttugu mínútur voru eftir af leiknum en hann haltraði lengi áður en honum var skipt af velli.

Petr Cech fór einnig meiddur af velli, einungis eftir sautján mínútur en hann fór þá úr axlarlið og mun missta af restinni af tímabilinu.

Það er því mikið áfall fyrir þá bláklæddu en liðið á afar mikilvægan leik gegn Liverpool um helgina þar sem baráttan um titilinn heldur áfram.

Terry gæti bæði misst af leiknum gegn Liverpool og seinni leiknum gegn Atletico Madrid en það mun koma í ljós á næstunni hve lengi hann verður frá.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner