Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   þri 22. apríl 2014 17:15
Elvar Geir Magnússon
Úrvalslið tímabilsins að mati Neville og Carragher
Mynd: Getty Images
Gary Neville og Jamie Carragher fara á kostum í þættinum Monday Night Football á mánudagskvöldum þar sem þeir rýna í ensku úrvalsdeildina.

Í þættinum í gær settu þeir saman úrvalslið tímabilsins og má sjá það hér að neðan. Þeir voru reyndar í vandræðum með nokkrar stöður og fengu áhorfendur til að kjósa.

David Marshall var valinn í markið frekar en Petr Cech og Luke Shaw vann samkeppni við Leighton Baines um stöðu vinstri bakvarðar.

Þá missti Adam Lallana naumlega af sæti í liðinu og Raheem Sterling var valinn á hans kostnað.
Athugasemdir
banner
banner
banner