lau 22. apríl 2017 20:43
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Bikarinn: Álftanes sló Vestra út
Álftanes.
Álftanes.
Mynd: Úr einkasafni
Berserkir.
Berserkir.
Mynd: Berserkir
Borgunarbikarinn hefur verið í fullu fjöri í dag og hér fyrir neðan má sjá úrslit úr fimm leikjum sem fóru fram síðdegis.

Á Bessastaðavelli urðu óvænt úrslit, Álftanes úr 4. deild kom þar á óvart með því að vinna Vestra úr 2. deild en lokatölur þar urðu 1-0.

Hamar sótti sigur til Eyja þar sem þeir léku við KFS á Helgafellsvelli, lokatölur þar 1-4 fyrir gestina.

Berserkir tryggðu sig áfram í næstu umferð með 3-1 sigri á Skallagrími.

Augnablik vann 6-0 stórsigur á Ísbirninum, Nökkvi sigraði svo Geisla A. örugglega, 1-7 í lokaleiks dagsins í Borgunarbikarnum.

Álftanes 1-0 Vestri
1-0 Egill Már Hreinsson ('1)

KFS 1-4 Hamar
0-1 Hrannar Einarsson ('28)
0-2 Magnús Otti Benediktsson ('34)
0-3 Samuel Andrew Malson ('53)
1-3 Gunnar Páll Hálfdánsson ('71)
1-4 Samuel Andrew Malson ('75)

Berserkir 3-1 Skallagrímur
0-1 Sigurður Sigurðsson ('16)
1-1 Karel Sigurðsson ('25)
2-1 Gunnar Jökull Johns ('51)
3-1 Karel Sigurðsson ('65)

Augnablik 6-0 Ísbjörninn
Mörk: Guðjón Gunnarsson 3, Hjörvar Hermannsson, Hermann Ármannsson, Arnór Brynjarsson.

Geisli A. 1-7 Nökkvi
0-1 Jón Heiðar Sigurðsson ('20)
0-2 Bjarni Freyr Guðmundsson ('25)
0-3 Þórður Sigmundur Sigmundsson, víti ('31)
0-4 Ingvar Már Gíslason ('35)
0-5 Þórður Halldórsson ('66)
0-6 Jón Viðar Þorvaldsson ('69)
0-7 Jón Viðar Þorvaldsson ('74)
1-7 Aðalbjörn Hannesson, sjálfsmark ('77)


Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner