Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 22. apríl 2017 19:37
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Harry Kane: Við vorum betra liðið
Mynd: Getty Images
Harry Kane var á skotskónum í dag fyrir Tottenham þegar liðið tapaði 4-2 fyrir Chelsea. Kane skoraði fyrra jöfnunarmark Tottenham með skalla í fyrri hálfleik.

„Ég held að við höfum verið betra liðið, við spiluðum betri fótbolta en við fundum ekki leið til þess að vinna. Stundum er fótboltinn svona", sagði Harry Kane.

„Þegar við náðum að jafna í 2-2 þá héldum við að við værum að fara vinna, en þá refsuðu þeir okkur með öðru marki. Það er erfitt að sætta sig við þetta".

Næsta verkefni Tottenham er heimsókn á Selhurst Park næstkomandi miðvikudag þar sem Crystal Palace bíður þeirra.
Athugasemdir
banner
banner
banner