Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 22. apríl 2017 16:47
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Joshua King hefur skorað fleiri mörk en Boro á árinu
King hefur verið sjóðandi heitur.
King hefur verið sjóðandi heitur.
Mynd: Getty Images
Joshua King, sóknarmaður Bournemouth, hefur verð sjóðandi heitur í ensku úrvalsdeildinni á árinu 2017.

Hann hefur hálpað Bournemouth mikið með því að skora 11 mörk.

Hann setti eitt af þessum mörkum þegar hann kom Bournemouth á bragðið eftir tvær mínútur gegn Middlesbrough í dag.

Leikurinn endaði með 4-0 sigri Bournemouth, en Middlesbrough er í ansi vonum málum, í fallsæti í ensku úrvalsdeildinni.

Þetta hefur ekkið verið gott ár fyrir Middlesbrough, en liðið hefur aðeins skorað sex mörk á árinu í ensku úrvalsdeildinni; fimm mörkum minna en Joshua King hefur tekist að gera.



Athugasemdir
banner