Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 22. apríl 2017 14:58
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Noregur: Lið Gunnhildar Yrsu tapaði aftur
Gunnhildur Yrsa í landsleik.
Gunnhildur Yrsa í landsleik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valerenga 0 - 2 Roa
0-1 Line Holter ('35 )
0-2 Lisa-Marie Utland ('67 )

Landsliðskonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir spilaði allan leikinn þegar lið hennar Valerenga tapaði á heimavelli í dag.

Valerenga fékk Roa í heimsókn í norsku úrvalsdeildinni, en önnur umferð deildarinnar stendur nú yfir.

Valrenga tapaði fyrsta leik sínum gegn Avaldsnes og í dag var annað tap liðsins í jafnmörgum leikjum staðreynd.

Line Holter og Lisa-Marie Utland skoruðu mörkin fyrir Roa sem sótti góð þrjú stig á heimavelli Valerenga.

Gunnhildur gekk í raðir Valerenga frá Stabæk í byrjun þessa árs og hefur spilað fyrstu tvo leiki liðsins. Úrslitin hafa ekki farið með hennar liði sem er án stiga eftir tvo leiki.
Athugasemdir
banner
banner