Miðvörðurinn hávaxni Kalidou Koulibaly gerði sigurmark Napoli í sögulegum sigri gegn Juventus.
Sigurinn galopnar toppbárattuna þegar fjórar umferðir eru eftir og leikur enginn vafi á því að fólk er ansi kátt í Napólí um þessar mundir.
Sigurinn galopnar toppbárattuna þegar fjórar umferðir eru eftir og leikur enginn vafi á því að fólk er ansi kátt í Napólí um þessar mundir.
Eins og margir vita þá er fótbolti lífsstíll á Ítalíu og á þessu tímabili geta sögulegir hlutir enn gerst, í fyrsta sinn í langan tíma eftir að Juventus tók aftur öll völd í ítölsku titilbaráttunni.
Þetta heyrist allt í röddinni hans Raffaele Auriemma, sem er meðal ástsælustu lýsenda innan ítalska knattspyrnuheimsins og harður stuðningsmaður Napoli.
Auriemma var að lýsa leiknum í beinni á Mediaset Premium og gjörsamlega missti sig þegar Koulibaly stangaði knöttinn í netið á lokamínútu venjulegs leiktíma.
„Callejon, tekur tilhlaupið og gefur fyrir... KOULIBALY! BOLTINN Í NETIÐ! NETIÐ ER ÚTBLÁSIÐ! NETIÐ ER ÚTBLÁSIÐ! NETIÐ ER ÚTBLÁSIÐ!
„MÓÐIR MÍN! MÓÐIR MÍN! MÓÐIR MÍN HJÁLPAÐU MÉR AÐ HEMJA ÞESSA GLEÐI!
„MÓÐIR MÍN! ÞVÍLÍKT MARK! KOULIBALY FÓR UPP Á ÞRIÐJU HÆÐ OG BLÉS ÚT NETIÐ! ÞVÍLÍKUR KOULIBALY! ÞVÍLÍKUR KOULIBALY! HJÁLPIÐ MÉR AÐ HEMJA ÞESSA GLEÐI!
„NAPOLI 1, JUVENTUS 0, HANN HOPPAÐI HÆST! K2! MÓÐIR MÍN! NAPOLI SKEMMTIGARÐURINN HEFUR OPNAÐ Á ALLIANZ LEIKVANGINUM! KOMIÐ UM BORÐ, KOMIÐ UM BORÐ! ALLIR UM BORÐ ÞAÐ ER FRÍTT, KOULIBALY SPLÆSIR!"
"MAMMA MIA... ". Koulibaly's goal with a commentary from Auriemma on Premium Sport. This is Passion. 💙😍👌🏻 #JuveNapoli pic.twitter.com/g7ss8LOcU1
— Everything Napoli (@NaplesAndNapoli) April 22, 2018
Athugasemdir