Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
banner
   sun 29. apríl 2018 15:26
Magnús Már Einarsson
Draumaliðsdeild Toyota opnuð - Skráðu þitt lið!
Þór/KA varð Íslandsmeistari í fyrra.
Þór/KA varð Íslandsmeistari í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Úr leik í Pepsi-deild kvenna í fyrra.
Úr leik í Pepsi-deild kvenna í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Búið er að opna fyrir skráningar í Draumaliðsdeild Toyota sem verður í tengslum við Pepsi-deild kvenna í sumar.

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!

Leikurinn í stuttu máli
Þú færð 100 milljónir króna til að kaupa 15 leikmenn úr Pepsi-deildinni. Leikmennirnir fá síðan stig fyrir frammistöðu sína á vellinum en mörg atriði eru tekin inn í reikninginn í stigagjöfinni.

Á síðunni er einnig boðið upp á sérstakar einkadeildir þar sem hægt er að keppa við vini og félaga og bera saman árangurinn.

Aðalverðlaunin eru glæsileg en Toyota gefur ferð fyrir tvo á leik í enska boltanum með Gaman ferðum.

Athugið að ekki hægt er að nota sama notendanafn og í fyrra. Fólk þarf að skrá sig upp á nýtt í ár.

Taktu þátt og sýndu snilli þína í að velja lið, þátttaka er að sjálfsögðu ókeypis!

Fyrsta umferðin í Pepsi-deild kvenna hefst á fimmtudaginn en þann dag lokar markaðurinn. Skráðu þitt lið til leiks í tæka tíð!

Á síðunni er einnig boðið upp á sérstakar einkadeildir þar sem hægt er að keppa við vini og félaga og bera saman árangurinn.

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner