Dele Alli og félagar hans í Tottenham töpuðu í gær í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar, mótherji þeirra var Manchester United en þeir sigruðu 2-1.
Dele Alli skoraði mark Tottenham í leiknum á 11. mínútu.
„Við brugðumst sjálfum okkur, þetta eru mikil vonbrigði. En nú er ekkert annað að gera en að halda áfram og klára þetta tímabil vel."
„Við getum ekki komist 1-0 yfir og svo lent 2-1 undir gegn Manchester United. Við megum ekki setja okkur í þessa stöðu," sagði Alli.
Næsti leikur Tottenham er gegn Watford í ensku úrvalsdeildinni þann 30. apríl.
Athugasemdir