Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 22. apríl 2018 20:51
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Atletico hvíldi lykilmenn gegn Betis
Griezmann kom af bekknum
Mynd: Getty Images
Atletico Madrid 0 - 0 Real Betis

Real Betis er svo gott sem búið að tryggja sér Evrópudeildarsæti eftir markalaust jafntefli við Atletico Madrid í síðasta leik dagsins í spænska boltanum.

Bæði lið fengu fín færi til að skora en ekki tókst að koma knettinum í netið. Atletico beitti sínum fræga skyndisóknarbolta á meðan Betis stjórnaði hraða leiksins.

Betis átta stigum fyrir ofan Sevilla og fimm fyrir ofan Villarreal sem eiga bæði leik til góða. Atletico er í öðru sæti, fjórum stigum fyrir ofan Real Madrid sem á leik til góða.

Atletico hvíldi lykilmenn í leiknum enda er undanúrslitaleikur við Arsenal á fimmtudaginn. Kevin Gameiro og Diego Godin komu ekki við sögu en Filipe Luis og Diego Costa voru frá vegna meiðsla. Antoine Griezmann, Sime Vrsaljko og Koke komu allir inn af bekknum.

Þetta eru allt menn sem munu byrja leikinn gegn Arsenal séu þeir heilir.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner