Þremur leikjum er lokið í spænska boltanum í dag og er Las Palmas stærðfræðilega fallið ásamt Malaga.
Las Palmas steinlá á heimavelli gegn Alaves þar sem Munir El Haddadi gerði tvennu fyrir gestina.
Las Palmas steinlá á heimavelli gegn Alaves þar sem Munir El Haddadi gerði tvennu fyrir gestina.
Gerard Moreno hefur verið funheitur með Espanyol og gerði bæði mörk liðsins í góðum sigri á Girona, sem hefði getað komist í evrópudeildarsæti með sigri.
Botnlið Malaga gerði sér þá lítið fyrir og svo gott sem eyðilagði vonir Real Sociedad um að komast í Evrópudeildina með góðum 2-0 sigri.
Girona 0 - 2 Espanyol
0-1 Gerard Moreno ('43)
0-2 Gerard Moreno ('55)
Malaga 2 - 0 Real Sociedad
1-0 Adrian ('11)
2-0 Y. En Nesiry ('35)
Las Palmas 0 - 4 Alaves
0-1 M. El Haddadi ('51)
0-2 M. El Haddadi ('73)
0-3 A. Medran ('79)
0-4 R. Sobrino ('91)
Athugasemdir