Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   sun 22. apríl 2018 18:43
Ívan Guðjón Baldursson
Sviss: Guðlaugur Victor að missa af Evrópudeildarsæti
Mynd: Getty Images
Luzern 2 - 1 Zurich
1-0 Claudio Lustenberger ('6)
1-1 Roberto Rodriguez ('43, víti)
2-1 Simon Grether ('93)

Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá Zurich sem tapaði þriðja leiknum af síðustu fjórum í svissnesku deildinni.

Guðlaugur og félagar eiga í mikilli hættu á að missa af evrópudeildarsæti eftir tapið, en liðið er fimm stigum frá Rúnari Má Sigurjónssyni og félögum í St. Gallen sem töpuðu í gær.

Leikurinn sjálfur var hnífjafn allt þar til Simon Grether gerði dramatískt sigurmark heimamanna í uppbótartíma.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner