Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 22. apríl 2018 14:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tékkland: Sandra María lagði upp tvö mörk
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Akureyringurinn Sandra María Jessen lagði upp tvö mörk fyrir Slavia Prag í sannfærandi sigri á Viktoria Plzen í tékknesku úrvalsdeildinni á þessu glæsilega sunnudegi.

Sandra María lék allan leikinn fyrir Slavia Prag og átti tvær stoðsendingar í 4-0 sigri.

Lið Söndru er komið aftur á topp deildarinnar eftir þennan sigur en liðið er í harðri samkeppni við nágranna sína í Spörtu Prag.

Úrslitakeppni deildarinnar er hafin en fimm umferðir eru eftir af tékknesku úrvalsdeildinni.

Sandra hefur verið að standa sig vel í Tékklandi en hún mun á næstu dögum snúa aftur til Íslands. Hún mun spila með Íslandsmeisturum Þór/KA í Pepsi-deildinni í sumar.
Athugasemdir
banner
banner