Kóngarnir, nýtt lið í 4. deildinni, byrjaði tímabilið af krafti í gær með 4-1 útisigri á Árborg.
Kóngarnir léku í fyrra undir merkjum Kumho Rovers í Utandeildinni þar sem liðinu gekk vel en í sumar leikur það í A-riðli í 4. deildinni.
Í leiknum í gærkvöldi leiddu Kóngarnir 1-0 í hálfleik og síðari hálfleik náðu þeir að auka forskot sitt fljótlega í 3-0.

Árborg 1 - 4 Kóngarnir
0-1 Guðjón Þór Valsson ('24)
0-2 Orri Axelsson ('47)
0-3 Elmar Snær Hilmarsson ('54)
1-3 Hafþór Ingi Ragnarsson ('55)
1-4 Elmar Snær Hilmarsson ('65)