Það er nóg um að vera í boltanum hér heima í dag, en hæst ber að nefna fjórðu umferð Pepsi-deildar kvenna.
Íslandsmeistarar Þór/KA fá Val í heimsókn á Akureyri, en það má búast við hörkuleik milli þessara stórliða. Á sama tíma mætast ÍBV og Þróttur á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum.
Klukkan 19:15 eru þá þrír aðrir leikir á dagskrá. Stjarnan fær HK/Víkings í heimsókn í Garðabæinn, FH fær Aftureldingu í Kaplakrika og þá fara Selfyssingar í Kópavog, þar sem liðið mætir Breiðablik.
Einn leikur fer þá fram í 1. deild kvenna og 4. deild karla, en alla leiki dagsins má sjá hér að neðan.
Leikir dagsins:
Pepsi-deild kvenna:
18:00 ÍBV - Þróttur R. (Hásteinsvöllur)
18:00 Þór/KA - Valur (Þórsvöllur)
19:15 Breiðablik - Selfoss (Kópavogsvöllur)
19:15 Stjarnan - HK/Víkingur (Samsung-völlur)
19:15 FH - Afturelding (Kaplakrikavöllur)
1. deild kvenna:
20:00 ÍR - Víkingur Ó. (Hertz-völlur)
4. deild karla:
20:00 Afríka - Álftanes (Leiknisvöllur)
20:00 Þróttur V. - Stokkseyri (Vogavöllur)
20:00 Skallagrímur - Stál-Úlfur (Skallagrímsvöllur)
20:00 Elliði - Léttir (Fylkisvöllur)
20:00 Ýmir - Mídas (Kórinn - gervigras)
20:00 Hvíti Riddarinn - Vatnaliljur (Tungubakkavöllur)



