Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 22. maí 2013 15:45
Brynjar Ingi Erluson
Best í 3. umferð: Danka Podovac (Stjarnan)
Kvenaboltinn
Danka Podovac er leikmaður umferðarinnar
Danka Podovac er leikmaður umferðarinnar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Ég er gríðarlega ánægð með þetta," sagði Danka Podovac, leikmaður Stjörnunnar í samtali við Fótbolta.net, en hún er leikmaður þriðja umferðar Pepsi-deildar kvenna eftir magnaða frammistöðu gegn FH, þar sem hún skoraði þrjú mörk.

Stjarnan vann FH með sjö mörkum gegn engu, en eins og áður segir skoraði Danka þrjú mörk. Hún var á mála hjá ÍBV á síðustu leiktíð en skipti yfir í Stjörnuna fyrir sumarið þar sem liðið hefur byrjað afar vel og er með fullt hús stiga.

,,Þetta er í fyrstu mörkin mín í deildinni, ég var ekki búin að skora eitt mark, svo það var frábært að ná þrennu, en allt liðið spilaði vel og ég er mjög ánægð með sigurinn," sagði Danka.

,,Við byrjuðum vel og erum með þrjá sigra, en það er of snemmt að byrja að tala um titilinn. Að sjálfsögðu viljum við titilinn, en það er ekki rétti tíminn til þess að tala um þetta fyrr en í september."

,,Við hugsum bara um næsta leik og förum ekki að hugsa um þetta fyrr en í september, en við höfum gæðin til þess að vera meðal efstu liða í deildinni,"
sagði Danka.

,,Ég er með eitt markmið fyrir þetta tímabil og það er að Stjarnan verði Íslandsmeistari."

Danka kom frá ÍBV eins og áður segir, en hún skoraði 12 mörk í 18 leikjum fyrir Eyjaliðið í Pepsi-deildinni í fyrra. Hún hefur aðlagast vel hjá Stjörnunni og líður vel í Garðabæ.

,,Ég er mjög ánægð í Stjörnunni og Stjarnan er gott félag. Við erum með gott lið og höfum náð í mjög góð úrslit hingað til."

HK/Víkingur heimsækir Stjörnuna á Samsung-völlinn í kvöld, en Danka er spennt fyrir leiknum.

,,Við erum jákvæðar og hugsum bara um að ná í þrjú stig og vonandi verður þetta góður leikur."
Slapp
banner