Fulham hefur fengið miðjumanninn Derek Boateng í sínar raðir frá Dnipro í Úkraínu sem og varnarmanninn Fernando Amorebieta frá Athletic Bilbao.
Hinn þrítugi Boateng var nálægt því að ganga í raðir Fulham í janúar en þá gengu félagaskiptin ekki í gegn.
Boateng hefur nú gert tveggja ára samning við Fulham en hann greindi frá þessu á Twitter síðu sinni í dag.

,,Ég er ánægður með að samningurinn sé staðfestur! Ég vil þakka Guð, fjölskyldu minni og öllum sem hafa staðið við bakið á mér," sagði Boateng.
Amorebieta skrifaði undir fjögurra ára samning við Fulham en hann hefur leikið yfir 250 leiki með Athletic Bilbao á ferli sínum.