Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 22. maí 2013 09:44
Elvar Geir Magnússon
Carlton Cole á förum frá West Ham
Sóknarmaðurinn Carlton Cole er á förum frá West Ham eftir sjö ár hjá félaginu. Þessi 29 ára leikmaður skoraði bara tvö mörk á liðinu tímabili og fær ekki nýjan samning.

West Ham hefur ákveðið að kaupa Andy Carroll alfarið og telur sig þar af leiðandi ekki hafa þörf á Cole.

Cole á sjö landsleiki að baki fyrir England.

Þá má geta þess að West Ham er í viðræðum við miðjumanninn Gary O'Neil, 30 ára, um nýjan samning.
Slapp
banner