El Hadji Diouf, leikmaður Leeds United á Englandi, varð fyrir óskemmtilegri reynslu á dögunum, en greint hefur verið frá því að hópur af unglingum hafi lamið hann inni á klósetti í Dakar, höfuðborg Senegal.
Diouf, sem er 32 ára gamall, var að hafa það náðugt í heimalandinu er hann var úti að borða á veitingarstað í Dakar.
Atvikið átti sér stað um 04:30 að staðartíma í Dakar, en svo virðist sem að senegalski framherjinn hafi átt upptökin. ,,Þið eruð ekki neitt, þið eru fátækir og eruð ekki með nein sambönd," sagði Diouf við hópinn.
Diouf var með öryggisverði á svæðinu, en hópnum tókst samt sem áður að lumbra á Diouf á klósetti veitingarstaðarins.
Starfsmenn og fastakúnnar veitingarstaðarins vildu lítið tjá sig um málið, en þetta er ekki í fyrsta sinn sem Diouf kemst í blöðin fyrir áflog.
Diouf á langa sögu að baki vegna atvika utan vallar, en hann var handtekinn í fyrra er hann lenti í slagsmálum í Manchester. Þá hefur hann verið sviptur ökuréttindum og keyrt drukkinn ásamt öðrum afbrotum.

