Heimild: Sky
Radamel Falcao, framherji Atletico Madrid, segist ekki vera búinn að ákveða að fara frá félaginu í sumar.
Falcao hefur verið orðaður við Manchester City, Chelsea og Monaco og Atletico hefur lýst því yfir að félagið muni ekki standa í vegi fyrir honum ef rétt tilboð kemur.
Hinn 27 ára gamli Falcao á ennþá þrjú ár eftir af samningi sínum við Atletico og hann er lítið að stressa sig.

,,Ég hef ekki hugsað of mikið um að fara. Raunveruleikinn er sá að ég á þrjú ár eftir af samningi mínum við Atletico," sagði Falcao.
,,Á síðasta tímabili var mikið af sögusögnum en það kom ekkert út úr því. Auðvitað veltur þetta á fjárhag félagsins og á því hvað Atletico gerir til að reyna að halda mér."
,,Ég hef reynt að hugsa ekki of mikið um sögusagnirnar varðandi félög sem hafa áhuga á mér. Í stað þess hef ég verið að einbeita mér að markmiðum mínum sem einstaklingur og leikmaður Atletico Madrid."