Laugardaginn 1.júni mun HK halda glæsilegt firmamót í Kórnum. Spilað verður í 4 undanriðlum og svo 4 úrslitariðlum.
Fyrirkomulagið gerir það að verkum að hvert lið spilar 6 leiki. 3 leiki í undanriðlinum og svo 3 leiki í úrslitariðlunum þar sem öll liðin í 1.sæti undanriðlana spila saman og svo koll af kolli. Þannig mætast lið af svipuðum styrkleika í úrslitariðlunum.
Verðlaun verða fyrir 1. sætið í hverjum úrslitariðli.
Spilað verður á 1/4 velli - 7vs7
Þáttökugjald eru 25.000 krónur á hvert lið
Spilað er frá kl 12:00 og lýkur mótinu um kl 17:00
Skráning fer fram á [email protected].
Allar frekari upplýsingar einnig veittar í gegnum tölvupóst.




