Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mið 22. maí 2013 13:17
Elvar Geir Magnússon
Hallur Flosa góður með gítarinn: Er ekki þessi partí-spilari
Segir bekkjarbróðir sinn Hjörvar Hafliða hafa bullað
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Twitter
„Það var frábært að skora þetta mark og var mikill léttir að fá fyrsta leikinn og skora," segir Hallur Flosason, leikmaður ÍA, sem skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild í gær þegar liðið vann Fram.

Hallur fékk tækifæri í byrjunarliði ÍA eftir að hafa verið ónotaður í hinum leikjunum.

Hann náði ekki að sofna fyrr en um klukkan 4 í nótt eftir leikinn. „Ég var svo peppaður, það er oft mjög erfitt að sofna eftir leiki."

Hjörvar Hafliðason sparkspekingur talaði um í Pepsi-mörkunum að Hallur hefði verið afar ósáttur með að vera ekki í liðinu í fyrstu leikjunum.

„Hann var reyndar bara að bulla. Ég er með Hjörvar í bekk í Háskólanum, við erum saman í íþróttafræðinni. Ég hef ekkert talað um þetta við hann svo það var frekar fyndið að hann hafi sagt þetta."

Hallur er nýstiginn upp úr 2. flokki en hann er einnig efnilegur tónlistarmaður.

„Ég gríp í gítarinn þegar ég hef ekkert að gera. Ég er að leika mér að „kovera" lög. Það er ekkert flóknara en það. Ég hef aðeins verið að fikta við að semja sjálfur en það er ekkert komið almennilega. Ég hef spilað í einhverjum brúðkaupum og svona en ég er ekki þessi partí-spilari. Ég er í tónlist í rólegri kantinum, Jón Jónsson og þannig," segir Hallur.

Hann er ákveðinn í að vinna sér inn fast sæti í liði Skagamanna. „Maður verður að reyna að nýta tækifærið og gera eitthvað af viti," segir Hallur en hér að neðan má sjá eitt af þeim lögum sem hann hefur sett á Youtube.


Slapp
banner
banner
banner