,,Ég er svekkt að við höfum ekki klárað leikinn," sagði Helena Ólafsdóttir eftir 2-2 jafntefli Þórs/KA og Vals á Akureyri í dag.
,,Mér fannst við færi til að klára dæmið eftir að hafa lent í erfiðri stöðu. Okkur tókst að vinna ágætlega úr henni en við nýttum ekki sénsana sem við fengum og því fór sem fór. Við komum norður í þannig stöðu að við vorum með fjögur stig eins og þær og þurftum að vinna. Stundum gengur það og stundum ekki og það gekk bara ekki í dag."
,,Við komum grimmar og ákveðnar inn í seinni hálfleikinn en uppskárum ekki alveg eins og við sáðum. Stelpurnar börðust allan leikinn og ég get ekki farið fram á meira. Við skoruðum mikið á undirbúningstímabilinu og höfum fengið mörg færi hingað til. Það er eitthvað smá stress í hópnum en það fer og þá koma mörkin. Við vorum léttari í dag en í seinustu leikjum og komum til með að byggja á því."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.






















