Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 22. maí 2013 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Football-Italia 
Higuain á leið til Juventus?
Ítalskir fréttamiðlar greina frá því að Gonzalo Higuain, sóknarmaður Real Madrid, sé að ganga til liðs við Ítalíumeistara Juventus í sumar.

Vitað er að Juventus er á höttunum eftir Higuain en nú greina ýmsir miðlar frá því að Higuain sé nálægt því að skrifa undir samning.

Starfsmenn Juventus sáust í Madríd þegar þeir fóru til að ræða við leikmanninn og er talað um að samkomulag hafi náðst.

Félagsskiptin eru þó ekki gengin í gegn þar sem Juventus á enn eftir að komast að samkomulagi um kaupverð við Real Madrid.
Slapp
banner
banner