,,Þetta var rosalega flottur leikur hjá okkur á móti hörkuliði sem Selfoss er í dag. Við erum rosalega ánægð með þennan leik," sagði Hlynur Svan Eiríkssson þjálfari Breiðabliks eftir 4-1 sigur á Selfossi í dag.
Hlynur hefur skipst á að nota þriggja og fjögurra manna varnarlínu í leikjum Breiðabliks í sumar. En hver er ástæðan fyrir því?
,,Það fer eftir ástandi leikmanna og á móti hverjum við erum að spila. Ég held það sé erfitt að kortleggja okkur líka, við erum með það öflugan og breiðan hóp að hann býður upp á fullt af möguleikum. Við erum að fara að spila við Aftureldingu, hverju búast þær við, að við spilum þriggja manna vörn eða fjögurra manna vörn."
Breiðablik er á toppi deildarinnar með fullt hús stiga en liðið var ekki svo ofarlega í spám í vor.
,,Ég skil ekki afhverju menn höfðu ekki meiri trú á liðinu. Það þarf ekki annað en að horfa á hópinn okkar. við erum með gríðarlega vel mannað lið og gott sóknarlið. Við erum með frábæra miðjumenn og varnarmenn og ég tala ekki um Birnu eins og hún er búin að spila allt mótið. Hún greip virkilega vel inní þessum leik hérna og þegar á þurfti að reyna þá gerði hún það virkilega vel. Vonandi að Siggi Raggi komi og horfi á leiki hjá liðinu."
Birna Kristjánsdóttir markvörður Breiðabliks hefur verið frábær í sumar og segist sjálf stefna á landsliðssæti. Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari valdi hana samt ekki í landsliðshóp sem mætir Skotum 1. júní, þrír aðrir markverðir voru á undan henni, Þóra B. Helgadóttir, Guðbjörg Gunnarsdóttir og Sandra Sigurðardóttir. En er hann ósáttur við að hún hafi ekki verið valin.
,,Já ég er svolítið svekktur fyrir hennar hönd og okkar hérna í Breiðablik. Hún er búin að spila virkileg vel og taka miklum framförum. Sandra er líka hörku markmaður og þær koma sjálfsagt til með að berjast um þetta þriðja sæti."























