Þorlákur Már Árnason, þjálfari Stjörnunnar í Pepsi-deildinni, var að vonum sáttur með 6-0 sigur liðsins á HK/Víking í kvöld.
Danka Podovac skoraði fernu í stórsigri Stjörnunnar í kvöld, en liðið er með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir.
,,Þetta voru mjög góð úrslit fyrir okkur. Spilamennskan í fyrri hálfleik ekkert sérstök, en þetta hafðist," sagði Láki.
,,Liðið í heildina og í seinni hálfleik þá fórum við í gang. Þetta var engin spurning í seinni hálfleiknum."
,,Í raun ekki, mér fannst HK/Víkingur spila mjög vel í fyrri hálfleik og þær voru að pressa á okkur. Ég held að það hafi farið smá orka í það, svo það losnaði mjög mikið í seinni hálfleik."
,,Hún er frábær leikmaður, skiptir svosem engu máli hver skorar, en fínt að við erum að skora mörk."
,,Við ætlum að vinna alla leiki sem við förum í og vonandi verður það til þess að við fáum titilinn," sagði hann að lokum.
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér að ofan.























