Guðmundur Þórarinsson, leikmaður Sarpsborg 08 í norsku úrvalsdeildinni, gerði sér lítið fyrir og skoraði í 3-3 jafntefli gegn Valerenga er liðin mættust í deildinni í gær.
Guðmundur, sem kom til Sarpsborg frá ÍBV, skoraði þá þriðja mark sitt í fjórða leiknum, en hann hefur verið á eldi undanfarið.
Þórarinn Ingi Valdimarsson skoraði einnig í leiknum, en Ásgeir Börkur Ásgeirsson og Haraldur Björnsson voru fjarri góðu gamni.
Hægt er að sjá markið hjá Guðmundi hér að neðan.
Thorarinsson vs. Valerenga from Sportic Players Management on Vimeo.



