Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mið 22. maí 2013 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Nasri vill vera áfram hjá Manchester City
Samir Nasri, leikmaður Manchester City á Englandi, hefur blásið á þann orðróm að hann sé á leið frá félaginu.

Nasri hefur verið sterklega orðaður við frönsku deildina, en Paris Saint-Germain er sagt áhugasamt um að fá leikmanninn í sínar raðir.

Franski landsliðsmaðurinn virðist þó ekki hafa áhuga á að fara, en hann ætlar sér að vera áfram þrátt fyrir uppsögn Roberto Mancini.

,,Þetta er ekki satt, þetta er bara bull. Leonardo, yfirmaður knattspyrnumála hjá PSG sagðist vilja fá franska landsliðsmenn inn í liðið og nefndi þar á meðal mig," sagði Nasri.

,,Ég hef þekkt hann mjög lengi, alveg frá því hann var hjá Inter. Ég vil vera áfram í Manchester, ég vil ekki fara. Þetta er bara orðrómur," sagði hann að lokum.
Slapp
banner
banner
banner