Tveimur leikjum var að ljúka í Pepsi-deild kvenna þar sem Þróttur Reykjavík gerði sér fýluferð til Vestmannaeyja og Valur náði stigi á Akureyri.
Þór/KA var tveimur mörkum yfir eftir hálftíma af leiknum en Kristín Ýr Bjarnadóttir minnkaði muninn með mikilvægu marki og var staðan 2-1 í hálfleik.
Svava Rós Guðmundsdóttir jafnaði leikinn fyrir Val þegar korter var eftir af leiknum og eru bæði lið með fimm stig eftir fjórar fyrstu umferðirnar.

Eyjakonur voru þá ekki í vandræðum með Þróttara og skoraði Bryndís Jóhannesdóttir úr tveimur vítaspyrnum í fjögurra marka sigri á Hásteinsvelli.
Þór/KA 2 - 2 Valur
1-0 Embla Sigríður Grétarsdóttir, sjálfsmark ('14)
2-0 Katrín Ásbjörnsdóttir ('29)
2-1 Kristín Ýr Bjarnadóttir ('33)
2-2 Svava Rós Guðmundsdóttir ('76)
ÍBV 4 - 0 Þróttur Reykjavík
1-0 Bryndís Jóhannesdóttir ('34, víti)
2-0 Vesna Smiljkovic ('40)
3-0 Sigríður Lára Garðarsdóttir ('84)
4-0 Bryndís Jóhannesdóttir ('88, víti)