Roberto Martinez, stjóri Wigan, mun ákveða framtíð sína hjá félaginu á morgun.
Martinez hefur verið orðaður við stjórastöðuna hjá Everton en hann ætlar að ákveða á næsta sólarhringnum hvort hann haldi áfram með Wigan eða ekki.
Martinez hefur verið orðaður við stjórastöðuna hjá Everton en hann ætlar að ákveða á næsta sólarhringnum hvort hann haldi áfram með Wigan eða ekki.
,,Robert vill 24 klukkutíma til að hugsa um hvað er í gangi. Hann vill tala við eiginkonu sína og hugsa málið sem ég skil fullkomlega," sagði Dave Whelan eigandi Wigan.
,,Við ætlum að hittast á morgun og Roberto ætlar að ákveða hvort hann ætli að vera áfram samningsbundinn Wigan eða taka við nýju starfi annars staðar."
Martinez var orðaður við stjórastöðu Liverpool í fyrrasumar en þessi 39 ára gamli Spánverij stýrði Wigan til sigurs í enska bikarnum á dögunum. Liðið féll hins vegar einnig úr ensku úrvalsdeildinni í síðustu viku.



