Heimild: Morgunblaðið
Skúli Jón Friðgeirsson hugsar sér til hreyfings frá sænska meistaraliðinu Elfsborg en hann hefur aðeins fengið að spila í 15 mínútur á tímabilinu og oftar verið utan hóps.
„Það var ekki beint góður tímapunktur að meiðast rétt eftir að ég kom til liðsins og eftir það var tímabilið búið. Ég hef aldrei fengið séns eftir það," sagði Skúli Jón í samtali við Tómas Þór Þórðarson hjá Morgunblaðinu.
„Mér finnst þetta ósanngjarnt. Mér finnst þessir gaurar sem eru að spila ekkert betri en ég. Ég fékk líka lítið að spila á undirbúingstímabilinu."
„Hlutirnir eru fljótir að breytast í fótboltanum en ef ekkert gerist þá fara bara tveir mánuðir hjá mér í að gera ekkert nema njóta sænska sumarsins. Ég horfi til gluggans í ágúst en hann opnast líka 1. júlí í Danmörku."
Elfsborg er í fjórða sæti deildarinnar eftir níu umferðir, fjórum stigum á eftir Helsingborg sem er á toppnum.





