Það er komið að því að birta allt helsta slúðrið sem ensku götublöðin birta í morgun. Þar sem Fótbolti.net er alþjóðleg síða lítum við líka í ítalska og franska fjölmiðla.
Wayne Rooney hefur það á tilfinningunni að verið sé að bola sér burt frá Manchester United. (Daily Mirror)
Real Madrid vill kaupa Gareth Bale frá Tottenham í sumar og er tilbúið að bjóða honum betri laun en honum er boðið að fá hjá Lundúnafélaginu. (Daily Star)
Aurelio De Laurentiis, forseti Napoli, segir að viðræður séu komnar af stað við Manchester City um Edinson Cavani. Svo gæti farið að Cavani fari til City og Edin Dzeko öfuga leið á móti. (Metro)
Manchester City, Chelsea og Real Madrid hafa öll áhuga á Isco hjá Malaga. (TalkSport)
Manchester United íhugar að gera tilboð í Andrea Ranocchia, miðvörð Inter og ítalska landsliðsins. Ranocchia var að stríða við meiðsli á liðnu tímabili og hafði það neikvæð áhrif á frammistöðu hans. (Football Italia)
Real Madrid og Barcelona eru að skoða möguleika á því að kaupa David Luiz, 26 ára varnarmann Chelsea. Sagan segir að Jose Mourinho hafi ekki áhuga á að halda leikmanninum ef hann snýr aftur á Stamford Bridge. (Daily Mail)
Fiorentina vill fá um 30 milljónir punda fyrir Stevan Jovetic en sóknarmaðurinn er meðal annars á óskalista Arsenal. (Daily Mirror)
David Moyes, verðandi knattspyrnustjóri Manchester United, er ákveðinn í því að vinna samkeppni við Chelsea um bakvörðinn 17 ára, Luke Shaw hjá Southampton. (Daily Mail)
Shaw hefur lýst yfir áhuga á að vera áfram hjá Southampton og skrifa undir sinn fyrsta atvinnumannasamning hjá félaginu. (Daily Telegraph)
West Ham er að tryggja sér þjónustu Andy Carroll og hefur áhuga á að fá Romelu Lukaku frá Chelsea á láni. Fleiri félög vilja fá Lukaku lánaðan, þar á meðal Swansea. (Daily Mirror)
Miðjumaðurinn Mauricio Isla íhugar að yfirgefa Juventus í sumar. (Tuttosport)
Paris St-Germain horfir til Rafael Benítez ef Carlo Ancelotti yfirgefur félagið til að taka við Real Madrid. (L'Equipe)
Roberto Martinez, knattspyrnustjóri Wigan, fær 48 klukkustundir til að ákveða að hvort hann vilji taka við Stoke af Tony Pulis. Martinez stýrði Wigan til bikarmeistaratitils á liðnu tímabili en náði ekki að forða liðinu frá falli. (Daily Express)
Ryan Shawcross, fyrirliði Stoke, segir það koma sér mjög á óvart að Tony Pulis hafi verið rekinn. (Stoke Sentinel)
Frank Lampard viðurkennir að hann hafi aldrei náð vel saman við Rafael Benítez. (The Sun)
Stoke hefur áhuga á að fá Phil Neville í þjálfarateymi sitt. Neville hefur sjálfur lýst yfir áhuga á að taka við af David Moyes sem knattspyrnustjóri Everton. (Guardian)
Gael Clichy segir að Roberto Mancini og leikmenn Manchester City verði að taka saman ábyrgð á því að Ítalinn var rekinn. (Independent)



