Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 22. maí 2015 16:30
Magnús Már Einarsson
Adebayor fær frí til að leysa fjölskyldu vandamál
Mynd: Twitter
Tottenham hefur í annað sinn á tímabilinu gefið Emmanuel Adebayor frí til að leysa úr fjölskyldu vandræðum.

Hinn 31 árs gamli Adebayor hefur greint frá vandamálum í fjölskyldunni og harkalegum deilum við bróður sinn.

Adebayor segist hafa íhugað að taka eigið líf vegna vandamálanna.

Adebayor verður í fríi þegar Tottenham mætir Everton í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar á sunnudag sem og í æfingaferð liðsins til Kuala Lumpur og Sidney eftir tímabilið.

„Þetta er einkalíf hans. Ég ræddi við hann fyrr í vikuni og þetta er erfitt fyrir hann," sagði Mauricio Pochettino stjóri Tottenham.
Athugasemdir
banner
banner