Carlo Ancelotti, þjálfari Real Madrid, segist ekki vera pirraður á sögusögnum um framtíð sína.
Real Madrid endar tímabilið án titils og mikil óvissa er um framtíð hans en Rafael Benítez er sterklega orðaður við félagið.
Real Madrid endar tímabilið án titils og mikil óvissa er um framtíð hans en Rafael Benítez er sterklega orðaður við félagið.
„Ég hef ekki rætt við félagið um framtíð mína," sagði Ancelotti.
„Félagið hefur sagt mér að við munum ræða saman þegar tímabilinu lýkur."
„Ég er ekki pirraður yfir sögusögnum um nýjan þjálfara Real Madrid. Það er eðlilegt í fótboltaheiminum."
Athugasemdir