Luis Enrique, þjálfari Barcelona, segir að hann sjái á eftir Xavi og segir að hann hafi trú á því að hann gæti spilað annað tímabil með liðinu.
„Við höfum talað við hann aftur og aftur. Hann hefur tekið ákvörðun. Hann hefur sagt hvernig honum líður og hvað hann telur rétt fyrir sig.''
„Ef hann myndi spila eins og hann er að gera núna það sem eftir er þá myndi ég framlengja við hann 25 sinnum í viðbót'' sagði Enrique.
Xavi hefur leikið með Barcelona frá árinu 1998 en hann hefur nú tekið ákvörðun að halda til Katar þar sem hann mun leika með Al Sadd.
„Ég held að hann gæti vel spilað annað tímabil fyrir Barcelona en það er hans val'' bætti Enrique við.
Barcelona er nú þegar búið að vinna spænsku deildina og geta unnið þrennuna ef þeim tekst að vinna Athletic Bilbao í Copa Del Rey á sunnudaginn og Juventus í Meistaradeildinni viku seinna.
Athugasemdir