Ellefu leikir fóru fram í Serie B í dag og var Birkir Bjarnason á skotskónum fyrir Pescara.
Birkir spilaði allan leikinn þegar Pescara sem sigraði Livorno 3-0 en liðið situr í sjöunda sæti deildarinnar.
Federico Melchiorri kom Pescara í 1-0 á 32. mínútu og það var svo okkar maður Birkir sem skoraði á 52. mínútu.
Birkir fullkomnaði síðan leik sinn með öðru marki í uppbótartíma.