Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 22. maí 2015 23:00
Stefán Haukur
Marotta: Vidal fer ekki til Real Madrid
Mynd: Getty Images
Guilherme Marotta segir að það sé enginn möguleiki á að Arturo Vidal gangi til liðs við Real Madrid í sumar.

Juventus sló út Real Madrid í Meistaradeild Evrópu fyrr í mánuðinum og munu þeir mæta Barcelona í úrslitunum.

„Hvorki Vidal né einhver annar munu fara til Real Madrid vegna þess að Juventus eru sterkari," sagði Marotta í viðtali við tuttosport.

Bæði Vidal og Paul Pogba hafa verið sterklega orðaðir við Real Madrid á þessu ári.
Athugasemdir
banner
banner
banner