Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fös 22. maí 2015 10:24
Magnús Már Einarsson
Mourinho og Hazard bestir
Jose Mourinho.
Jose Mourinho.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Chelsea, hefur verið valinn stjóri tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni og Eden Hazard hefur verið valinn leikmaður tímabilsins.

Dómnefnd á vegum ensku úrvalsdeildarinnar sá um valið en í henni sátu fyrrum leikmenn, sem og blaðamenn og aðilar sem tengjast fótboltanum.

Mourinho stýrði Chelsea til sigurs í ensku úrvalsdeildinni og hafði betur gegn Ronald Koeman, Garry Monk, Nigel Pearson og Arsene Wenger í vali á stjóra tímabilsins.

Hazard hefur skorað 14 mörk á tímabilinu og lagt upp átta til viðbótar með Chelsea.

John Terry, Cesc Fabregas, Nemanja Matic, Sergio Aguero, David De Gea, Harry Kane og Alexis Sanchez komu einnig til greina í valinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner