Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 22. maí 2015 11:30
Magnús Már Einarsson
Rosicky tekur eitt tímabil í viðbót með Arsenal
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arsenal hefur ákveðið að nýta sér ákvæði í samningi Tomas Rosicky og framlengja saminginn um eitt ár.

Hinn 34 ára gamli Rosicky hefur komið sterkur inn á þessu tímabili eftir mikil meiðsli undanfarin ár.

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur ákveðið að verðlauna hann með árs framlengingu.

Rosicky mun koma til Íslands í næsta mánuði þegar Tékkar mæta Íslendingum í undankeppni EM þann 12. júní.
Athugasemdir
banner
banner