Aron Sigurðarson byrjar tímabilið af miklum krafti með Tromsö í norsku úrvalsdeildinni.
Aron fékk 7 í einkunn hjá Verdens Gang fyrir frammistöðu sína í 1-1 jafntefli gegn Stromsgödset í gær en hann var valinn maður leiksins.
Aron fékk 7 í einkunn hjá Verdens Gang fyrir frammistöðu sína í 1-1 jafntefli gegn Stromsgödset í gær en hann var valinn maður leiksins.
Í síðustu viku var Aron einnig maður leiksins í 2-1 útisigri á Rosenborg en þar skoraði hann sigurmarkið.
Tromsö er í 8. sæti norsku úrvalsdeildarinnar eftir tíu leiki en Aron hefur borið af hjá liðinu það sem af er tímabils.
Aron er á sínu öðru tímabili með Tromsö en hann kom til liðsins frá Fjölni. Hann var íslenska landsliðshópnum gegn Kosóvó og Írlandi í mars.
Sjá einnig:
Aron spáir í 4. umferð Pepsi-deildarinnar
Athugasemdir