banner
   mán 22. maí 2017 21:21
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bikarinn kvenna: Tindastóll lagði Völsung
Stelpurnar í Tindastóli fara áfram í bikarnum.
Stelpurnar í Tindastóli fara áfram í bikarnum.
Mynd: Fótbolti.net: Eyjólfur Garðarsson
Tindastóll 3 - 1 Völsungur
0-1 Hulda Ösp Ágústsdóttir ('20)
1-1 Kolbrún Ósk Hjaltadóttir ('25)
2-1 Bryndís Rún Baldursdóttir ('45)
3-1 Madison Cannon ('75)

Tindastóll og Völsungur áttust við í kvöld í 32-liða úrslitum Borgunarbikars kvenna á Sauðárkróki.

Gestirnir frá Húsavík komust yfir þegar Hulda Ösp Ágústsdóttir skoraði, en stuttu síðar jafnaði Kolbrún Ósk Hjaltadóttir.

Bryndís Rún Baldursdóttir náði síðan forystunni fyrir Tindastól og nokkru seinna gerði Madison Cannon út um leikinn.

Lokatölur urðu 3-1 fyrir Tindastól sem fer áfram í Borgunarbikarnum. Liðið verður í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslit bikarsins.

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner