Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mán 22. maí 2017 18:21
Magnús Már Einarsson
Byrjunarlið ÍA og Grindavíkur: Þrír miðverðir hjá ÍA?
Gylfi Veigar kemur inn í lið ÍA.
Gylfi Veigar kemur inn í lið ÍA.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Will Daniels kemur inn í lið Grindavíkur.
Will Daniels kemur inn í lið Grindavíkur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA og Grindavík mætast í Pepsi-deildinni klukkan 19:15. Skagamenn eru ennþá að leita að sínum fyrstu stigum í sumar á meðan Grindvíkingar eru með fjögur stig eftir þrjár umferðir.

Miðverðirnir Arnór Snær Guðmundsson og Gylfi Veigar Gylfason koma báðir inn í liðið hjá ÍA. Pólski varnarmaðurinn Robert Menzel er einnig í liðinu og því er útlit fyrir að Skagamenn skipti um leikkerfi og verði með þrjá miðverði.

Bakvörðurinn Hilmar Halldórsson kemur einnig inn í liðið en Hallur Flosason, sem hefur verið hægri bakvörður, er fjarri góðu gamni. Sóknarmaðurinn ungi Tryggvi Hrafn Haraldsson hefur verið að glíma við meiðsli og hann byrjar á bekknum.

Hjá Grindavík er varnarmaðurinn Björn Berg Bryde ekki með í dag. Will Daniels kemur inn í liðið en annars er sama liðsskipan og í tapinu gegn Víkingi Ólafsvík í síðustu umferð. Will skoraði fjögur mörk gegn Völsungi í Borgunarbikarnum í síðustu viku.

Beinar textalýsingar:
19:15 FH - Fjölnir
19:15 ÍA - Grindavík
20:00 Valur - KR

Byrjunarlið ÍA:
33. Ingvar Þór Kale (m)
3. Aron Ingi Kristinsson
4. Arnór Snær Guðmundsson
5. Robert Menzel
6. Albert Hafsteinsson
9. Garðar Gunnlaugsson
11. Arnar Már Guðjónsson
16. Þórður Þorsteinn Þórðarson
20. Gylfi Veigar Gylfason
22. Steinar Þorsteinsson
26. Hilmar Halldórsson

Byrjunarlið Grindavíkur:
12. Kristijan Jajalo (m)
6. Sam Hewson
7. William Daniels
8. Gunnar Þorsteinsson
9. Matthías Örn Friðriksson
10. Alexander Veigar Þórarinsson
16. Milos Zeravica
18. Jón Ingason
23. Brynjar Ásgeir Guðmundsson
25. Aron Freyr Róbertsson
99. Andri Rúnar Bjarnason

Beinar textalýsingar:
19:15 FH - Fjölnir
19:15 ÍA - Grindavík
20:00 Valur - KR
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner