Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 22. maí 2017 19:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Defoe í viðræðum við Bournemouth
Fer Defoe til Bournemouth?
Fer Defoe til Bournemouth?
Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn Jermain Defoe er í viðræðum við Bournemouth um möguleg félagsskipti, en þetta kemur fram á Sky Sports.

Defoe er með klásúlu í samningi sínum hjá Sunderland sem gerir honum kleift að fara frítt eftir fall liðsins úr ensku úrvalsdeildinni.

Bournemouth ræddi við umboðsmann Defoe í dag, en búist er við því að hlutirnir muni ganga fljótt fyrir sig. Ef allt gengur upp verður hann orðinn leikmaður Bournemouth á næstu dögum.

Hinn 34 ára gamli Defoe gerði allt sem hann gat til þess að hjálpa Sunderland. Hann skoraði 15 deildarmörk, en það var ekki nóg.

West Ham hefur líka verið orðað við Defoe, en nú virðist líklegra að hann sé á leið til Bournemouth. Hann hefur áður leikið með liðinu, á láni frá West Ham tímabilið 2000/01.

Bournemouth endaðu í níunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner