Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 22. maí 2017 20:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fellaini: Liðsfélagarnir og Mourinho treysta mér
Fellaini er ekki beint vinsælasti leikmaðurinn.
Fellaini er ekki beint vinsælasti leikmaðurinn.
Mynd: Getty Images
Marouane Fellaini, leikmaður Manchester United, segist hafa traust hjá liðsfélögum sínum og stjóranum, Jose Mourinho.

Fellaini er alls ekki sá vinsælasti hjá stuðningsmönnum United.

„Nei," sagði Fellaini aðspurður að því hvort gagnrýnin trufli sig. „Ég reyni að sinna mínu starfi, gefa það besta af sjálfum mér og vinna fótboltaleiki."

Fellaini hefur oft gerst sekur um stór mistök, en hann var m.a. rekinn af velli fyrir að skalla Sergio Aguero, leikmann Manchester City, í síðasta mánuði. Hann segir að allir þeir sem skipta máli treysti sér.

„Þjálfaraliðið treystir mér. Stjórinn, liðsfélagarnir. Þeir skipta mestu máli," sagði Fellaini.
Athugasemdir
banner
banner