Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 22. maí 2017 23:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Maradona: Totti er besti leikmaður sem ég hef séð
Totti er goðsögn hjá Roma.
Totti er goðsögn hjá Roma.
Mynd: Getty Images
Diego Maradona, sem er af mörgum talinn besti fótboltamaður sögunnar, segir að Francesco Totti sé sá besti sem hann hefur séð.

Totti er goðsögn hjá Roma, en hann hefur leikið allan sinn feril hjá félaginu. Á 25 árum hefur hann spilað 785 leiki.

Þetta gæti verið hans síðast tímabil sem leikmaður, en hann hefur sjálfur ekki staðfest að svo sé.

„Francesco Totti er kóngurinn í Róm. Hann er og verður besti leikmaður sem ég hef nokkurn tímann séð! #Respect." skrifaði Maradona á Facebook-síðu sína og birti mynd af Totti með.

Miklar líkur eru á því að þetta sé síðasta tímabil Totti, en hann mun líklega fá eitthvað starf hjá Roma að leikmannaferlinum loknum.

Hér að neðan má sjá færsluna frá Maradona.


Athugasemdir
banner
banner
banner