David Moyes hefur sagt upp störfum sem knattspyrnustjóri Sunderland eftir fall liðsins úr ensku úrvalsdeildinni.
Tíu ára dvöl Sunderland í deildinni er lokið.
Tíu ára dvöl Sunderland í deildinni er lokið.
Í tilkynningu segist Moyes óska leikmönnum og manninum sem muni taka við starfinu velgengni í því verkefni að endurheimta sætið í deild þeirra bestu.
Sunderland endaði í neðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar og vann aðeins sex leiki.
Moyes hafnaði því að taka við starfslokagreiðslum frá félaginu.
Þetta er í fyrsta sinn sem Moyes fellur sem knattspyrnustjóri en hann hafði varað stuðningsmenn við því eftir aðeins tvær umferðir að liðið myndi vera í erfiðri baráttu.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir