Mikil vandræði eru í vörn Arsenal fyrir leikinn gegn Chelsea í úrslitum enska bikarsins á laugardaginn.
Laurent Koscieny fékk rauða spjaldið gegn Everton í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í gær og verður því í leikbanni.
Laurent Koscieny fékk rauða spjaldið gegn Everton í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í gær og verður því í leikbanni.
Shkodran Mustafi fékk höfuðhögg gegn Sunderland í síðustu viku og óvíst er með þátttöku hans í leiknum á laugardag. Mustafi var ekki með gegn Everton í gær og ekki er ljóst hvort hann geti spilað úrslitaleikinn.
Þá var Gabriel borinn af velli í gær en hann er meiddur á hné og þau meiðsli líta ekki vel út.
Per Mertesacker kom inn á fyrir Gabriel í gær en þetta var fyrsti leikur Þjóðverjans á tímabilinu eftir langa fjarveru vegna meiðsla.
Athugasemdir