Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 22. maí 2018 06:00
Ingólfur Stefánsson
Keflavík semur við fimm leikmenn kvennaliðsins
Mynd: Keflavik.is
Fimm leikmenn skrifuðu nýlega undir samning hjá kvennaliði Keflavíkur.

Þetta eru þær Ástrós Lind Þórðardóttir, Birgitta Hallgrímsdóttir, Dagmar Mýrdal Gunnarsdóttir, Eva Lind Daníelsdóttir og Marín Rún Guðmundsdóttir.

Dagmar Mýrdal gekk til liðs við Keflavík frá ÍR í vetur en allar hinar hafa æft með Keflavík upp yngri flokka.

Keflavíkurliðið er á toppi Inkasso deildarinnar með 6 stig eftir fyrstu tvo leiki sumarsins.
Athugasemdir
banner
banner